Staðnám

Þitt eigið jólakonfekt – skemmtilegt námskeið í konfektgerð með Ólöfu Ólafsdóttur

Allir sem elska gott konfekt

Farið verður í mismunandi aðferðir og tækni við gerð konfekts sem þátttakendur nýta sér við útfærslur á sínu eigin konfekti.

Meðal annars er fjallað um:

  • - Temprun á súkkulaði
  • - Fyllingar
  • - Samsetningu á mismunandi tegundum af konfekti
  • - Hjúpun

Allt hráefni verður á staðnum og innifalið í námskeiðsgjaldi. Þátttakendur fá svo afrakstur námskeiðsins með sér heim til að gæða sér á yfir hátíðarnar.

Námskeiðið er 4,5-5 klst.

Leiðbeinandi er Ólöf Ólafsdóttir, einn fremsti konditor landsins. Ólöf sigraði í keppni um eftirrétt ársins 2021 og var einn af meðlimum í kokkalandsliðinu sem hlaut tvenn gullverðlaun og hafnaði í 3. sæti samanlagt á Ólympíuleikunum í matreiðslu í febrúar 2024.

Ólöf gaf út bókina „Ómótstæðilegir eftirréttir“ árið 2023.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
01.12.2024sun.11:0015:30Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús.
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband