Eigin úttektir í byggingaframkvæmdum
Byggingamenn
Eftirlitsáætlun og úttektarform
Námskeiðið er ætlað starfsmönnum fyrirtækja í byggingariðnaði sem þurfa að gera eftirlitsáætlun og útbúa úttektarform og sinna eigin úttektum í byggingaframkvæmdum. Farið verður yfir kröfur mannvirkjalaga og byggingarreglugerðar til fyrirtækja, byggingarstjóra og iðnmeistara um gerð eftirlitsáætlunar og eiginúttektir í byggingarframkvæmdum. Þátttakaendur fá í hendur drög að eftirlitsáætlun fyrir mismunandi verkþætti. Einnig drög að úttektareyðublöðum og vinna með þessi gögn og aðlaga að eigin rekstri. Unnið verður með úttektarformin í úttektum. Þannig fá þátttakendur þjálfun í gerð og notkun eftirlitsáætlana og úttektarforma.
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
28.11.2024 | fim. | 13:00 | 17:00 | Akureyri, Símey Þórsstíg 4 |