Kanntu brauð að baka? - vinnusmiðja í brauð- og sætabrauðsbakstri með bakarameistaranum Remy Corbert
Bakarar og bakaranemar sem starfa í bakaríum og vilja bæta færni sína og læra nýja aðferðir við brauð og bakkelsi.
Á námskeiðinu fer Remy Corbert á sinn einstaka hátt yfir mismunandi áferðir, bökunnar tækni og hönnun við súrdeig og rúlluð deig, helguð Viennoiserie eða „pâtisseries viennoises“ eins og þessi franska aldargamla aðferð er oftast kölluð.
Remy Corbet er virtur og margverðlaunaður bakari. Hann er yfirþjálfari og meðlimur í norska bakaralandsliðinu sem meðal annars vann gullverðlaun 2019 á Scandinavia cup og lenti í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu í bakstri „Coupe du Monde de la Boulangerie“ í París 2022. Remy Corbet hefur líka dæmt bakara keppnir víða um heim og er einnig í forsvari fyrir „Ambassadeur du Pain“ í Noregi.
Remy Corbet Daniel Jean eins og hann heitir fullu nafni er franskur en flytur til Noregs árið1998 þar sem hann hefur búið og starfað síðan.
Insta : remy_corbet_daniel_jean
FB : Remy Corbet
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
27.11.2024 | mið. | 13:00 | 19:00 | Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús. |
28.11.2024 | fim. | 09:00 | 17:00 | Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús. |