Staðnám

Hringrásardælur

Pípulagningamenn

Þetta námskeið er ætlað pípulagningamönnum, hönnuðum og öðrum sem annast húsumsjón. Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um virkni hringrásar-,  húskerfa- og þrýstiaukadæla.  Farið er yfir helstu atriði sem lúta að útreikningum á flæði og lyftigetu hringrásardæla og er þá horft til algengustu gerða þeirra.  Uppsetningu og stillingu á stjórnkerfum dælanna verða gerð góð skil auk þess sem farið verður yfir tengingar við hússtjórnarkerfi. Jafnframt verður farið lauslega yfir þrýstiaukadælur fyrir t.d. hærri byggingar.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
20.11.2024mið.13:0016:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband