Staðnám

IMI Rafbílanámskeið þrep 3 - Vinna og viðgerðir á háspennukerfi raf og tvinn bíla

Bifvélavirkjar - Bifreiðasmiðir

Fyrir hvern er þetta námskeið?

Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa áhuga á að öðlast þekkingu til að vinna á öruggan hátt við viðgerðir raf/tvinn bíla.

Námskeiðið er  hannað fyrir þá sem vinna við almennar viðgerðir og viðhald og gætu þurft að þjónusta raf/tvinn bíla. Einnig veitir námskeiðið þá þekkingu og hæfni til að vinna á öruggan hátt við bifreiðar sem orðið hafa fyrir tjóni og hætta er á að háspennukerfi hafi skemmst.

Þessi vottun veitir kynningu og innsýn inn í þennan sérhæfða hluta bílgreinarinnar og sér til þess að aðilar geti haldið áfram að sinna sínum störfum á öruggan hátt og er þá átt við störf sem tengjast t.d.:

  • Þjónustu og viðhaldi bifreiða
  • Almennar viðgerðir
  • Bilanagreiningu

Skilyrði fyrir þátttöku í námskeiði

Að hafa lokið IMI rafbílanámskeiði á þrepi 2.2. Einnig er gert  ráð fyrir að þátttakendur hafi töluverða almenna þekkingu á bifreiðum og starfi innan bílgreinarinnar. Æskilegt er að þátttakandi hafi sveinspróf innan bílgreinarinnar eða sambærilega menntun. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi skilyrði til þátttöku hafðu samband við okkur og við skoðum málið.

Hvað mun þátttakandinn læra á þessu námskeiði

Námsefni þessa námskeiðs hefur verið hannað til þess að gefa þátttakendum þá þekkingu og hæfni sem þarf til að sinna bilanagreiningu, prófunum og viðgerðum  raf-, tengiltvinn og tvinn bíla á öruggan hátt (ekki í lifandi spennu). Á námskeiðinu mun þátttakandi öðlast þekkingu og hæfni varðandi:

  • Hvernig skal vinna á öruggan hátt í háspennukerfum bifreiða.
  • Hvernig skal nota viðeigandi upplýsingar við vinnu.
  • Virkni, bilanagreiningu og viðgerð í háspennukerfum(ekki í lifandi spennu).
  • Hvernig skrá skal niður upplýsingar og vinna úr þeim.
 

Þátttakendur sem ljúka þessu námskeiði mun því öðlast mikla þekkingu um virkni raf/tvinn bíla og hvernig staðið að viðgerðum og útskiptum á hlutum innan háspennukerfisins(ekki í lifandi spennu).

Námsmat

 Námskeiðið er vottað af Institute of the Motor Industry (IMI) í  Bretlandi og lýkur með verklegu prófi sem tengist útskiptum á háspennuíhlut.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
19.11.2024þri.09:0016:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
20.11.2024mið.09:0016:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
21.11.2024fim.09:0016:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband