Öryggismenning
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Miklar framfarir hafa náðst síðustu áratugi í efnislegu og tæknilegu öryggi á vinnustöðum, t.d. við hönnun vinnustaða og við öryggisbúnað véla og tækja. Til þess að ná lengra í öryggismálum og fækka vinnuslysum enn frekar þarf að beita nýjum aðferðum. Skoða þarf sálræna og félagslega þætti í samspili við vinnuskipulag og vinnuumhverfi.Á þessu námskeiði verður fjallað um hvernig má innleiða öryggismenningu á vinnustað, þ.e. breyta hugsun og hegðun starfsmanna og stjórnenda til langs tíma.Kennsluefnið er byggt á sænskri aðferðafræði sem kallast „Byggt á öryggi“. Hugmyndafræði „Safety I og II“ verður einnig kynnt.Námskeiðið byggist upp af fyrirlestri, umræðum, verkefnum og myndum af raunverulegum aðstæðum.Fyrir hverja er námskeiðið?Alla sem vilja auðlast meiri þekkingu á öryggismenningu og fá upplýsingar um hvernig má koma henni á og viðhald henni.ÁvinningurÞátttakendur kynnast nýrri hugmyndafræði til að auka öryggi á vinnustöðum og fækka vinnuslysum.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
13.11.2024 | mið. | 13:00 | 15:00 | Fjarnám |