Staðnám

Rafmagn I - Uppbygging og mæling rafrása

Bifvélavirkjar-Bifreiðasmiðir

Þetta námskeið er sérstaklega ætlað þeim sem lítið hafa unnið í rafmagni eða vilja ná betri tökum  á grunn þáttum mælinga í rafkerfum bifreiða. Fjallað verðum um grunn atriði rafmagnsfræðinar með það að markmiði að þátttakandi hafi þekkingu til að geta byggt upp rafrásir, lesið einfaldar rafmagnsteikningar og á endanum nýtt þá þekkingu til að framkvæma mælingar í rafkerfum bifreiða og nýtt þær í bilanagreiningu.

Námskeiðið er byggt upp á blöndu af fræðilegu innlegi og verklegum æfingum í sértækum kennslubúnaði en aðal áherslan er á verkleg verkefni. 

Farið verður yfir:

  • Grunnhugtök rafmagnsfræðinnar
  • Mæla spennu, straum og viðnám
  • Ohms lögmálið
  • Mismunandi gerðir rafrása
  • Notkun mælitækja (fjölsviðsmælir)
  • Virkni íhluta

 

 

 


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
12.11.2024þri.09:0017:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband