Staðnám

Ómótstæðilegir eftirréttir – ítarlegt eftirrétta námskeið með landsliðskokknum Ólöfu Ólafsdóttur

Fagfólk í matvæla- og veitingagreinum sem hafa áhuga á að bæta við sig færni í eftirrétta og kökugerð.

Markmið námskeiðsins er að þjálfa aðferðir og vinnubrögð við eftirrétti og desert kökur. Áhersla verður lögð á að ná góðri færni þar sem meðal annars verður farið í:

  • temprun á súkkulaði
  • súkkulaðiskrau gerð mismunandi tegunda á mús
  • gljá/hjúpun að eftirréttum og litlum kökum
  • samsetningu eftirrétta á disk

Námskeiðið er kennt þrjá daga í röð og er stærsti hluti þess verklegur en þar er þátttakendum skipt í hópa, þrír í hverjum þar sem hver hópur gerir einn eftirrétt og eina köku - fernt af hvoru.

Leiðbeinandi er Ólöf Ólafsdóttir, einn fremsti eftirréttakokkur landsins. Ólöf útskrifaðist sem Konditor frá ZBC Ringsted í Danmörk árið 2021 og sama ár bar hún sigur úr býtum í keppni um eftirrétt ársins. Ólöf fór með íslenska kokkalandsliðinu á Ólympíuleikana í Stuttgart í febrúar síðastliðnum þar sem liðið hlaut tvenn gullverðlaun og hafnaði í þriðja sæti samanlagt. Er það besti árangur kokkalandsliðsins frá upphafi. Í dag starfar Ólöf sem eftirréttakokkur á veitingastaðnum Monkeys.

Ólöf gaf út bókina „Ómótstæðilegir eftirréttir“ árið 2023 og fá þátttakendur eintak af bókinni að gjöf í lok námskeiðs.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
05.11.2024þri.14:0018:00Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús.
06.11.2024mið.14:0018:00Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús.
07.11.2024fim.14:0018:00Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús.
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband