Staðnám

Gæðakerfi iðnmeistara - virkniúttekt - meistaraskólinn

Þetta námskeið er fyrir verðandi iðnmeistara. Tilgangur þesser að auka skilning þátttakenda á uppbyggingu og hlutverki gæðakerfa og hvernigvirkniúttekt er framkvæmd á þeim.  Farið er í gegnum gæðakerfi sem sniðiðer að þörfum iðnmeistara og helstu þætti í virkni þess.  Gerð er greinfyrir helstu kröfum sem gerðar til úttekta sem fara fram áframkvæmdatíma.  Farið er í gegnum ferli virkniúttektar sem framkvæmd er ávegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og hvaða atriði þurfa að vera í lagiþegar hún fer fram. Til þess að geta tekið að sér verkefni sem eru úttektarskyld þurfa iðnmeistararað vera með umrætt gæðakerfi.Námskeiðsgögnin geta nýst sem grunnur að gæðakerfi. Leiðbeinandi á námskeiðinu er byggingarstjóri og iðnmeistari og hefur sjálfurfarið í gegnum virkniúttektir á eigin gæðakerfum. 


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband