Lykilinn að starfsánægju -þekking og færni til að brenna ekki upp í starfi. bætt líðan – lífskraftur – meiri árangur.
Þetta námskeið er ætlað öllu því starfsfólki sem vill minnka stress, bæta samskipti og byggja upp traust, jákvæðni og vellíðan í starfi.
Markmið námskeiðsins er að auka skilning og hæfni stjórnenda og starfsfólks til að skapa og innleiða leiðtogamenningu. Það ríki traust, jákvætt hugarfar, vellíðan og allir hafi tækifæri til að njóta sín.
Með velvild og stuðningi aukum við starfsánægju og minnkum líkur á langtíma veikindum og kulnun. Um leið aukum við árangur og samkeppnishæfni.
Það sem er tekið fyrir:
- Hvernig góður starfsandi, sjálfsöryggi og samvinna styrkja leiðtogahæfni.
- Hvernig markviss uppbygging á leiðtogamenningu eykur gleði og árangur.
- Hvernig starfsmenn geta aukið lífsorkuna, jákvætt hugarfar og starfsánægju.
- Hvernig hægt er að draga úr veikindum og kulnun.
Ávinningur:
- Aukin þekking á leiðum til að skapa menningu leiðtoga.
- Hæfni til að byggja upp meira sjálfsöryggi, traust og samvinnu.
- Stjórnendur og starfsmenn ræða fyrr saman um líðan.
- Nýr skilningur á áhrifamætti einfaldra lífsorkuæfinga (t.d. Qigong).
- Meiri starfsánægja, minni veikindi og kulnun.
- Styrkjum leiðtogahæfni allra.
- Við getum gert betur í dag en í gær.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðum og léttum lífsorkuæfingum. Ræðum leiðir til að styrkja leiðtogahæfni, auka starfsánægju, einbeitingu og árangur. Einnig lærum við og njótum saman léttra Qigong lífsorkuæfinga. Það er góður grunnur að heilsu og lífskrafti til að njóta lífsins enn betur í leik og starfi.Kennari er Þorvaldur Ingi Jónsson. Hann er með meistarapróf í stjórnun og stefnumótun. Þorvaldur heldur fyrirlestra um áhrifamátt leiðtogamenningar og jákvæðs skapandi lífsmáta, ásamt því að kenna og leiða Qigong lífsorkuæfingar.
Umsögn frá námskeiðinu í mars 2024. Námskeiðið, kennslan og námskeiðsgögnin voru mjög góð. Þorvaldur mjög vel máli farinn og skemmtilegur. Farið var vel yfir lykilþætti til að styrkja leiðtogahæfni hjá öllum starfsmönnum. Námskeiðið hjálpar okkur klárlega til að skapa enn sterkari heild og leiðtogamenningu, og er góður grunnur að meiri árangri til framtíðar. Ég mæli eindregið með þessu námskeiði. Ottó Magnússon, eigandi Reykjavik fish og Klakastyttur.