Staðnám (fjarnám í boði)

Figma frá A-Ö

hönnuðir, umbrotsmenn, starfsfólk í útgáfu og fjölmiðlafyrirtækjum, grafísk miðlun

Lærðu að búa til gagnvirkt viðmót frá grunni með því að nota eitt öflugasta og skilvirkasta hönnunartól sem er á markaðnum: Figma.

Hæfni til að samræma og vinna með teyminu þínu í rauntíma er orðin nauðsyn innan hönnunarheimsins. Figma gerir þér kleift að gera einmitt það í hvaða stýrikerfi sem er og í rauntíma. Þess vegna er Figma orðið nauðsynlegt tól fyrir hönnuði. 

Í þessu stutta námskeiði hjá Iðunni fræðslusetri leiðir Steinar þig í gegnum króka og kima þessa forrits frá grunni. Lærðu að búa til gagnvirka skjái fyrir vefsíður, farsímaforrit og önnur grafísk viðmót í gegnum hagnýtar gerðir sem þú getur unnir með teyminu þínu og prófað á notendum.

Að námskeiði loknu eiga nemendur að geta hannað og skilað af sér notendavænni viðmótshönnun. Ef þeir hafa stundað námskeiðið af áhuga og eljusemi geta þeir öðlast góða þekkingu á Figma forritinu og byggt upp sterkan grunn til að hanna og skila af sér góðri notendavænni viðmótshönnun.

Gert er ráð fyrir því að nemendur vinni stuttar æfingar og verkefni til að öðlast betri skilning á hvernig Figma virkar. Því er svo skilað á tilskildum tíma til kennara. 


Nánari upplýsingar er að finna hjá Kristjönu Guðbrandsdóttur, Leiðtoga prent- og miðlunargreina kristjana@idan.is.

 


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband