Staðnám

Röraverkpallar

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Í lok bóklegs hluta námskeiðsins taka nemendur skriflegt krossapróf sem þeir þurfa að standast. Á námskeiðinu eru vinnuverndarlögin kynnt stuttlega og farið er yfir helstu reglugerðir sem tengjast fallvörum. Kennt er ítarlega um kröfur í reglugerð um röraverkpalla nr. 729 frá 2018.Aðrar fallvarnir en röraverkpallar eru kynntar s.s. trévinnupallar, stigar og tröppur, körfukranar (spjót), skæralyftur, hengiverkpallar, skotbómulyftarar með CE merktri mannkörfu, mannkörfur fyrir lyftara, mannkörfur fyrir krana, CE merktar mannkörfur fyrir krana, vinnulyftur og að lokum verður fjallað um fallbelti og öryggislínur.Gerð skriflegrar áætlunar um öryggi og heilbrigði (áhættumat) er kynnt og farið verður yfir hvernig á að gera slíka áætlun vegna vinnu í hæð. Öryggis og heilbrigðisáætlun á byggingarvinnustað er kynnt stuttlega.Námskeiðið er bóklegt fyrir hádegi, þá fara fram fyrirlestar og sýndur er mikill fjöldi mynda af raunverulegum aðstæðum. Bóklega hlutanum líkur með skriflegu krossaprófi, svara þarf 80% af prófinu rétt til að standast það. Eftir hádegi fer fram verkleg þjálfun í uppsetningu og niðurtöku röraverkpalla.Námskeiðið er kennt hjá Rafmennt Stórhöfða 27, 110 Reykjavík.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
02.10.2024mið.08:3017:00Rafmennt, Stórhöfða 27, 3.hæð
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband