Staðnám

Gæðakerfi iðnmeistara - virkniúttekt - meistaraskólinn

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara sem eru með gæðakerfi og þá sem hyggjast koma sér upp slíku kerfi.  Tilgangar þess er að auka skilning þátttakenda á uppbyggingu og hlutverki gæðakerfa og hvernig virkniúttekt er framkvæmd á þeim.  Farið er í gegnum gæðakerfi sem sniðið er að þörfum húsasmíðameistara og helstu þætti í virkni þess.  Gerð er grein fyrir helstu kröfum sem gerðar til úttekta sem fara fram á framkvæmdatíma.  Farið er í gegnum ferli virkniúttektar sem framkvæmd er á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og hvaða atriði þurfa að vera í lagi þegar hún fer fram.  Námskeiðsgögnin geta nýst sem grunnur að gæðakerfi.  Leiðbeinandi á námskeiðinu er byggingarstjóri og iðnmeistari og hefur sjálfur farið í gegnum virkniúttektir á eigin gæðakerfum



HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
01.10.2024þri.17:0021:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband