Fjarnám

Áhættumat

Hvaða vinnustaðir eiga að gera áhættumat og hver á vinnustaðnum á að sjá um framkvæmdina?Á námskeiðinu er farið yfir hvað vinnuverndarlögin og reglugerðir segja um áhættumat. Uppbygging áhættumatsins og hugmyndafræði þess er útskýrð. Kennd er einföld og markviss aðferð til að gera áhættumat en hún heitir „sex skref við gerð áhættumats“. Aðferðin byggist á notkun gátlista og eyðublaða frá Vinnueftirlitinu. Á námskeiðinu eru gerðar raunhæfar æfingar í að greina hættur í vinnuumhverfinu. Farið er yfir eyðublöð og verkfæri sem gott er að nota við áhættumat. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur auðvelt með að gera áhættumat á sínum vinnustað. Þátttakendur geta sent kennurum námskeiðsins spurningar um eigið áhættumat að námskeiðinu loknu.Námskeiðið er kennt í fjarfundi gegnum Google Meet. Námskeiðin byrja alltaf klukkan 13:00 og standa til 15:00Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og verkefnum og sýndur er fjöldi mynda af raunverulegum aðstæðum.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
30.09.2024mán.13:0015:00Fjarnám
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband