Loftþéttleikamælingar húsa
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja kynna sér og/eða framkvæma loftþéttleikamælingar á húsum. Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um loftþéttleikamælingar og framkvæmd þeirra. Á námskeiðinu fara fram mælingar á þéttleika tilraunahúss Iðunnar og BYKO sem stendur á lóð Iðunnar og munu allir þátttakendur fá að framkvæma slíkar mælingar.
Í kafla 13.5 í byggingarreglugerð um lofþéttleika húsa segir að tryggja skuli að hús séu nægjanlega loftþétt til að koma í veg fyrir orkutap og að dragsúgur valdi ekki óþægindum. Fyrir fullhitað húsnæði (Ti>[18°C]1)) skal miða við að þéttleiki byggingarflata í hjúpfleti sé nægjanlegur þannig að lofthleypni mæld við 50 Pa mismunaþrýsting sé minni heldur en töflugildi sýna.
Farið verður í gegnum aðferðafræði loftþéttleikamælinga ásamt tækjum og hugbúnaði sem notaður er við mælingarnar. Einnig verður fjallað um loftleka, helstu ástæður fyrir þeim og þær afleiðingar sem þeir geta haft í för með sér. Einnig hvaða ráðstafanir er hægt að gera til að þétta hús fyrir loftlekum.
Námskeiðið er í tvennu lagi, annars vegar fræðilegur hluti sem er 3 klst og inniheldur m.a. verkefni sem unnið er í tölvu sem er á staðnum. Hins vegar er verklegur hluti sem er 1,5 klst. Allir þátttakendur sitja fræðilega hlutann en verklega hlutann framkvæma þátttakendur í minni hópum. Verklegi hlutinn fer fram eftir fræðilega hlutann samdægurs eða síðar eftir því sem veður leyfir í samráði við þátttakendur.
Leiðbeinendur á námskeiðinu hafa báðir sótt námskeið erlendis í loftþéttleikamælingum og einnig framkvæmt þær við raunverulegar aðstæður hérlendis og erlendis í mismunandi mannvirkjum. Jósef Anton Skúlason er húsasmíðameistari og byggingarstjóri. Ásgeir Valur Einarsson er byggingafræðingur og leiðtogi sjálfbærni hjá Iðunni fræðslusetri.
Námskeiðið var búið til með styrk úr Aski - mannvirkjarannsóknarsjóði.