Staðnám

Loftþéttleikamælingar húsa

Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja kynna sér og/eða framkvæma loftþéttleikamælingar á húsum.  Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um loftþéttleikamælingar og framkvæmd þeirra. Á námskeiðinu fara fram mælingar á þéttleika tilraunahúss Iðunnar og BYKO sem stendur á lóð Iðunnar og munu allir þátttakendur fá að framkvæma slíkar mælingar. 

Í kafla 13.5 í byggingarreglugerð um lofþéttleika húsa segir að tryggja skuli að hús séu nægjanlega loftþétt til að koma í veg fyrir orkutap og að dragsúgur valdi ekki óþægindum.  Fyrir fullhitað húsnæði (Ti>[18°C]1)) skal miða við að þéttleiki byggingarflata í hjúpfleti sé nægjanlegur þannig að lofthleypni mæld við 50 Pa mismunaþrýsting sé minni heldur en töflugildi sýna.

Farið verður í gegnum aðferðafræði loftþéttleikamælinga ásamt tækjum og hugbúnaði sem notaður er við mælingarnar.  Einnig verður fjallað um loftleka, helstu ástæður fyrir þeim og þær afleiðingar sem þeir geta haft í för með sér.  Einnig hvaða ráðstafanir er hægt að gera til að þétta hús fyrir loftlekum. 

Námskeiðið er í tvennu lagi, annars vegar fræðilegur hluti sem er 3 klst og inniheldur m.a. verkefni sem unnið er í tölvu sem er á staðnum.  Hins vegar er  verklegur hluti sem er 1,5 klst.  Allir þátttakendur sitja fræðilega hlutann en verklega hlutann framkvæma  þátttakendur í minni hópum.  Verklegi hlutinn fer fram eftir fræðilega hlutann samdægurs eða síðar eftir því sem veður leyfir í samráði við þátttakendur. 

Leiðbeinendur á námskeiðinu hafa báðir sótt námskeið erlendis í loftþéttleikamælingum og einnig framkvæmt þær við raunverulegar aðstæður hérlendis og erlendis í mismunandi mannvirkjum.  Jósef Anton Skúlason er húsasmíðameistari og byggingarstjóri.  Ásgeir Valur Einarsson er byggingafræðingur og leiðtogi sjálfbærni hjá Iðunni fræðslusetri.  

Námskeiðið var búið til með styrk úr Aski - mannvirkjarannsóknarsjóði.



Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband