Staðnám

Eflum leiðtogahæfni, orku og þor - njótum meiri árangurs.

Starfsfólk veitingastaða, framreiðslufólk, matreiðslumenn, bakarar og kjötiðnaðarmen.

Markmiðið námskeiðsins er að auka skilning og hæfni stjórnenda og stafsfólks til að skapa og innleiða leiðtogamenningu. Það ríki traust, jákvætt hugarfar, vellíðan og allir hafi tækifæri til að njóta sín. Með velvild og stuðningi aukum við starfsánægju og minnkum líkur á langtíma veikindum og kulnun. Um leið aukum við árangur og samkeppnishæfni.

Það sem er tekið fyrir:

-Hvernig góður starfsandi.

-Sjálfsöryggi og samvinna styrkja leiðtogahæfni.

-Hvernig markviss uppbygging á leiðtogamenningu eykur gleði og árangur.

-Hvernig starfsmenn geta aukið lífsorkuna, jákvætt hugarfar og starfsánægju.

-Hvernig hægt er að draga úr veikindum og kulnun.

Ávinningur:

-Aukin þekking á leiðum til að skapa menningu leiðtoga.

-Hæfni til að byggja upp meira sjálfsöryggi, traust og samvinnu.

-Stjórnendur og starfsmenn ræða fyrr saman um líðan.

-Nýr skilningur á áhrifamætti einfaldra lífsorkuæfinga (t.d. Qigong).

-Meiri starfsánægja og minni veikindi.

-kulnun.

-Styrkjum leiðtogahæfni allra.

VIÐ getum gert betur í dag en í gær. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðum og léttum lífsorkuæfingum. Ræðum leiðir til að styrkja leiðtogahæfni, auka starfsánægju, einbeitingu og árangur. Einnig lærum við og njótum saman léttra Qigong lífsorkuæfinga. Það er góður grunnur að heilsu og lífskrafti til að njóta lífsins enn betur í leik og starfi. Kennari er Þorvaldur Ingi Jónsson. Hann er með meistarapróf í stjórnun og stefnumótun. Þorvaldur heldur fyrirlestra um áhrifamátt leiðtogamenningar og jákvæðs skapandi lífsmáta, ásamt því að kenna og leiða Qigong lífsorkuæfingar.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
21.05.2024þri.14:0018:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband