Lífsferilsgreiningar í byggingariðnaði - LCA
Bygginga- og mannvirkjagreinar
Þetta námskeið er fyrir iðnaðar- og tæknifólk sem kemur að efnisvali bygginga og mannvirkja. Markmið þess er að kynna þátttakendur fyrir lífsferilsgreiningum bygginga og hugmyndafræði þeirra, hvernig þær eru gerðar og hvernig megi lágmarka kolefnisspor framkvæmda.
Lífsferilsgreiningar eða LCA (Life Cycle Assessment) eru að koma sterkt inn í byggingariðnaðinn og er það í tengslum við sjálfbærnibyltinguna sem er að eiga sér stað. Með LCA er hægt að taka heildstæðar ákvarðanir um efnisval og því lágmarka kolefnisspor og skaðleg áhrif á umhverfið. Umhverfisvottanir hafa sett auknar kröfur á hönnun bygginga hvað varðar gæði og sjálfbærni, þar eru sem dæmi kröfur í bæði BREEAM og Svansvottun sem tengjast lífsferilsgreiningum.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
- Grunnatriði sjálfbærni í byggingariðnaði
- Hvað er LCA?
- Hringrásarhagkerfið
- Umhverfisvottanir
- BREEAM
- Svanurinn
- EPD yfirlýsingar
- LCA verkefni sem unnið verður í OneClick LCA
Námskeiðið er verklegt að hluta til svo æskilegt er að þátttaendur taki með sér fartölvu. Einnig er hægt að fá lánaða tölvu á kennslustað. Nánari upplýsingar um undirbúning verða sendar þátttakendum.