Staðnám
Mannvirkjaskrá
Þetta námskeið er fyrir byggingarstjóra. Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um Mannvirkjaskrá til auðvelda þeim notkun á henni. Farið verður yfir uppbyggingu, virkni og helstu aðgerðir sem byggingarstjórar þurfa að framkvæma við áfangaúttektir. Þátttakendur munu vinna með Mannvirkjaskrána og eru beðnir um að mæta með eigin tölvur á námskeiðið. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og eru leiðbeinendur sérfræðingar HMS.