Staðnám

Verkefna- og gæðastjórnun fyrir verkefna- og byggingarstjóra

Byggingamenn

Námskeiðið er byggt á kröfum opinberra verkkaupa um gæðastjórnun og bókinni Verkefna- og gæðastjórnun - Handbók stjórnenda við mannvirkjagerð.

Námskeiðið er ætlað stjórnendum og eftirlitsaðilum við mannvirkjagerð.

Farið er í saumana á kröfum opinberra verkkaupa og kröfum í byggingareglugerð og sýnd dæmi um verklagsreglur, áætlanir og eftirlitsblöð.

Á námskeiðinu fá þátttakendur góða yfirsýn yfir nauðsynlega verkferla frá upphafi verks til verkloka og eru færir um að útbúa og leggja fram nauðsynleg gögn samkvæmt kröfum opinberra verkkaupa og byggingarreglugerðar um gæðatryggingu.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband