Staðnám

Slappaðu af

Þetta námskeið er ætlað starfsfólk í matvæla og veitingagreinum sem vilja læra um einkenni og forvarnir gegn kulnun, örmögnun og veikindum sem tengjast streitu og álagi

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!

Námskeið fyrir starfsfólk í matvæla og veitingagreinum þar sem hraðinn er mikill og streita algeng. Markmið þess er að huga að forvörnum gegn kulnun, örmögnun og veikindum sem tengjast streitu og álagi ásamt fræðslu um tauga – streitu- og slökunarkerfið.

Kynntar verða leiðir til að vinna á móti streitutengdum einkennum og aðferðir til að efla innri styrk og seiglu en seigla er hæfileiki til að viðhalda heilbrigðu og stöðugu andlegu og líkamlegu ástandi Kynntar verða gagnlegar æfingar og verkefni til að losa um streitu.

Í lok námskeiðs verður boðið upp á góða Jóga Nidra djúpslökun. Einnig fá þátttakendur upplýsingar með hagnýtum ráðleggingum og leiðum til að vinna áfram með streitustjórnun og til að efla vellíðan í lífi og starfi.

Þátttakendur fá enn fremur aðgang að Jóga Nidra rafrænum hugleiðsluaðferðum til að eiga eftir vinnustofuna.

Kennarinn: Hugrún Linda Guðmundsdóttir er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Einnig markþjálfi með diplomagráðu á meistarastigi í jákvæðri sálfræði, diploma í mannauðsstjórnun og núvitundarkennari með áherslu á streitu (MBSR) og hugræna meðferð (MBCT). Hún er líka Jóga nidra og Kundalini jógakennari.



HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
13.11.2023mán.09:3015:30Heillandi Hugur Hlíðasmári 14
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband