Frágangur og skoðun prentskjala
hönnuðir, prentsmiðir, umbúðahönnuðir, umbrotsfólk
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Hönnuðir þurfa að skila prentgögnum sem prenthæfum PDF-skjölum við prentun. Því miður er oft misbrestur á frágangi slíkra skjala með tilheyrandi aukakostnað og töfum í framleiðslu. Á þessu námskeiði er farið í gegnum atriði til að nálgast á endanum fullbúið skjal til prentunar.
Algeng mistök í skilum á prentefni og hvernig má koma í veg fyrir þau. Þá er í hverjum þætti námskeiðsins farið yfir góð samskipti við viðskiptavini. Tveir sérfræðingar koma að námskeiðinu, allir með sérþekkingu á sínu sviði þegar kemur að frágangi prentgagna enda eru áherslur misjafnar eftir því um hvers konar prentgrip er að ræða.
Farið verður í eftirfarandi þætti:
- Undirbúningur á prentverki og skoðun gagna. Grunnatriðin.
- Áhersluatriði við frágang á umbúðum til prentunar.
- Litir mynda, áhrif pappírs á liti, upplausn mynda, litablöndur, lakk og sérlitir.
- Skilgreiningar á stansateikningum, upphleypingum, lökkun og fleira.
- Lokaskoðun prentgagna. Hvað þarf að hafa í huga? Er verkið í samræmi við fyrirliggjandi kostnaðaráætlun. Hvernig á að hátta samskiptum við viðskiptavini til að byggja upp traust og tryggja farsæla framleiðslu.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
07.03.2023 | þri. | 09:00 | 11:30 | Rafmennt, Stórhöfða 27, 3.hæð |
14.03.2023 | þri. | 09:00 | 11:30 | Rafmennt, Stórhöfða 27, 3.hæð |