Bílstjóri sem ekur stórri bifreið í ökuréttindaflokki D1 og D, farþegaflutningar í atvinnuskyni og í flokki C1 og C, vöruflutningar í atvinnuskyni, skal sækja 35 kennslustunda endurmenntun á 5 ára fresti.
Myndvinnsla með gervigreindartækni. Notuð verða verkfæri á borð við MidJourney, Dall-e, StableDiffusion og Photoshop. Farið verður í grunnatriði þess að skrifa leiðbeiningar til að búa til myndir.
Á námskeiðinu er unnið með teikningar og útflatninga teknar æfingar í pinnasuðu, mig/mag-suðu, tig-suðu, logsuðu og kveikingu. Einnig verður farið yfir gömul próf
Þetta námskeið er ætlað þeim sem sem eru að útbúa nýjan garð eða gera breytingar á eldri garði. Einnig þeim sem koma að hönnun og framkvæmdum í görðum. Farið er yfir helstu mannvirki i görðum svo sem sólpalla, skjólgirðingar, hellulagnir, hleðslur, smáhýsi, heita potta o. fl. Farið er í gegnum hvaða forsendur liggja að baki hverri framkvæmd eins og staðsetning, undirlag, efni og annað og hvað þarf að hafa í huga í ferlinu. Einnig eru kynntar reglur sem gilda um hvers konar mannvirki í görðum.
Á þessu námskeiði er farið yfir OneDrive og helstu aðgerðir en þar kynnumst við hvernig skýjalausnir halda utan um gögnin og hvar við getum nálgast þau. Með Teams fáum við tækifæri að nýta okkur þessa frábæru lausn til samskipta og sækjum gögn frá t.d. OneDrive.
Á þessu námskeiði er markmiðið að þátttakendur nái betri tökum á Excel töflureikninum, útreikningum og helstu formúlum sem er algengt að styðjast við í iðnaði.
Opnunartímar: mánudagar-fimmtudagar 9:00 - 16:00 | föstudagar 9:00 - 14.00