Gervigreind í byggingariðnaði - fræðslufundur

4. febrúar kl.8:30 að Vatnagörðum 20, einnig er hægt að sjá fundinn í streymi.

    Á þessum fræðslufundi verður fjallað um gervigreind og hvernig hún hefur áhrif á dagleg störf allra í byggingariðnaði. Fjallað verður um notkun gervigreindar við framkvæmdir, vinnu iðnaðarmanna og þeirra sem stjórna byggingaverkefnum. Einnig samskipti milli aðila og rýni hönnunargagna ásamt áætlanagerð. Farið verður lauslega yfir stafræna hönnun og BIM og fjallað verður um tækninýjungar sem stýrast af gervigreind eins og róbóta, dróna o.fl.

    Fundurinn er öllum opinn og þátttakendum að kostnaðarlausu. Honum verður einnig streymt á Teams og skulu þau sem vilja fylgjast með honum þannig skrá sig í fjarnám.

    Að loknum fyrirlestri verða fyrirspurnir og umræður.

    Fyrirlesari er Hjörtur Sigurðsson hjá Mynstra. Hann hefur um árabil unnið að því að innleiða stafræna tækni í byggingariðnaðinn, með sérstakri áherslu á BIM, gervigreind og stafræn vinnubrögð. Hjörtur hefur víðtæka reynslu af störfum hjá leiðandi verktökum og verkfræðistofum, bæði á Íslandi og erlendis, þar sem hann hefur gegnt lykilhlutverkum í þróun og innleiðingu tæknilausna fyrir byggingariðnaðinn.

     

    Skráðu þig hér.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband