Íslandsmót nema og ungsveina í matvæla -og veitingagreinum 2025.
Skráningar eru hafnar á Íslandsmót nema og ungsveina í matvæla -og veitingagreinum 2025.
Mótið fer fram helgina 7-9. febrúar. Skráningarfrestur er til og með 17. janúar.
Mótið í ár verður stórglæsilegt og til mikils að vinna en undanfarin ár hafa sigurvegarar keppna á mótinu hér heima verið landi og þjóð til sóma í keppnum erlendis.
Sigurvegarar hljóta fallegan bikar og keppnisrétt fyrir Íslands hönd í keppnum erlendis. Að auki hljóta allir keppendur þátttökuverðlaun og í verðlaunaafhendingunni sunnudaginn 9.febrúar verða dregin út vegleg útdráttarverðlaun sem allir keppendur eiga möguleika á að hljóta óháð árangri.
Við hvetjum ungt fólk af öllum kynjum til þátttöku á Íslandsmótinu. Hvert og eitt ykkar skiptir máli sem fyrirmynd í faginu.
Nánari upplýsingar um verkefni keppenda og skráning fer fram Hér.
Nánari upplýsingar um keppnina veitir: Steinn Óskar Sigurðsson Leiðtogi matvæla- og veitingagreina hjá Iðunni fræðslusetri Steinn@idan.is