Atvinnulífið og Tækniskólinn taka höndum saman

Breytingar á námi í prent- og miðlunargreinum

    Skólameistari Tækniskólans, Hildur Ingvarsdóttir, formaður GRAFÍU, Georg Páll Skúlason og fulltrúi SI, Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir stjórnarformaður Prentmet Odda skrifuðu undir yfirlýsingu í dag um að vinna í sameiningu að þróun og breytingum á námi í prent- og miðlunargreinum.

    Skrifað var undir samstarfsyfirlýsinguna í nýju húsnæði greinanna í Vatnsholti. Á sama tíma stóð yfir glæsileg útskriftarsýning nemenda í grafískri miðlun og prentun og því gott tilefni til að fagna.

    Markmið breytinganna er að fjölga nemendum í prent- og miðlunargreinum og auka fagþekkingu til framtíðar.

    Helstu breytingar sem stefnt er að er að sameina allar faggreinar prent- og miðlunargreina undir einu starfsheiti, Grafískur miðlari. Nemendur fái sama grunn en velji svo áherslu á prentun, prentsmíði eða bókband, sem þjálfast svo enn frekar á vinnustað.

    Nemendur sem taka sveinspróf í faginu öðlast réttindi til að starfa í grafískum greinum og tækifæri til þess að sérhæfa sig á því sviði sem þeir kjósa.

    Með fyrirhuguðum breytingum er brugðist við þörf atvinnulífsins fyrir meiri fagþekkingu og hæfni til þess að starfa á breiðara sviði í prentgreinum. Stefnt er að því að ný námsskrá verði tilbúin haustið 2025.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband