Loftgæði að utan sem innan
Faghópur Stjórnvísi um loftlagsmál og umhverfismál stendur fyrir viðburði um loftgæði þann 29. október nk.
Viðburðurinn verður haldinn í húsi Iðunnar að Vatnagörðum 20. Hann hefst kl. 9.00 og stendur í klukkustund. Fjallað verður um loftgæði bæði innan og utan dyra og hvernig þéttleiki húsa getur verið heilsueflandi.
Meðal fyrirlesara er Ásgeir Valur Einarsson, leiðtogi sjálfbærni hjá Iðunni fræðslusetri.
Skráning og frekari upplýsingar má finna hér á vef Stjórnvísis.