Fjórir af fimm keppendum voru ungar konur
Afar mjótt á munum á Norrænu móti í málaraiðn
Ungi Norðmaðurinn Jonas Eckholm vann Norrænt mót í málaraiðn sem fór fram dagana 14.-16.ágúst í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið var haldið samhliða þingi Norrænna málarameistara, NMO-Nordic, sem haldið er annað hvert ár. Málarameistarafélagið stóð bæði að mótinu og þinginu. Fulltrúi Íslands var Hildur Magnúsdóttir Eirúnardóttir og stóð hún sig með sóma. Athygli vekur að fjórir af fimm keppendum eru ungar konur en málaraiðn er sú iðngrein á Norðurlöndum þar sme kynjahlutföll eru jöfnust. Í Danmörku, Svíþjóð og Noregi er hlutfallið nánast 50% en í Finnlandi er skiptingin komin í 70% konur og 30% karlar í faginu.