Fréttir
02. mars 2023

Auglýsing um sveinspróf

Auglýsing um sveinspróf

Stefnir þú á sveinspróf?

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldinsem hér segir ef næg þátttaka næst:

 

  • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl
  • Í byggingagreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl
  • Í blikksmíði í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl
  • Í vélvirkjun 15. - 17. september. Umsóknarfrestur er til 1. júlí
  • Í veiðafæratækni í maí.Umsóknarfrestur er til 1. apríl
  • Í stálsmíði 30. ágúst - 1. september. Umsóknarfrestur er til 15. júní
  • Í snyrtifræði í september/október. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst
  • Í hársnyrtiiðn í september/október. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst
  • Í bifreiðasmíði og bílamálun í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl
  • Í bifvélavirkjun í september. Umsóknarfrestur er til 1. júlí
  • Í hönnunar og handverksgreinum í maí og júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl

 

Nánari dagsetningar verða birtar á vef Iðunnar fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.

 

Með umsókn skal leggja fram afrit af náms-samningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2023.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér og á skrifstofu okkar að Vatnagörðum 20.

Fleiri fréttir