Vilt þú ljúka iðnnámi og taka sveinspróf?
Ef þú hefur unnið við iðngrein í 3 ár og ert 23 ára eða eldri þá er raunfærnimat tækifæri fyrir þig.
Þú lærir ekki bara í skólanum heldur einnig í vinnu og tómstundum. Raunfærnimat er leið til að meta þekkinguna sem þú öðlast utan skólakerfisins. Matið getur þannig stytt tímann í framhaldsskóla og verið hvatning til að ljúka sveinsprófi. Þetta hafa fjölmargir nýtt sér og fengið réttindi í sinni grein.
Náms- og starfsráðgjafar Iðunnar hjálpa þér í öllu ferlinu. Heyrðu í okkur í síma 590 6400 eða fylltu út formið hér og við aðstoðum þig við að ná þér í réttindin.