Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í nóvember 2021. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu.
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í nóvember 2021 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 15. nóvember og verða þeir opnir til 27.nóvember. Námskeiðinu lýkur með prófi laugardaginn 27. nóvember, (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar).
Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.
Umsókn fer fram á vef IÐUNNAR fræðsluseturs ásamt fylgigögnum eigi síðar en þriðjudaginn 3. nóvember 2021.
Fylgigögn eru:
- afriti af prófskírteini umsækjanda
- vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
- vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki
(ath. öllum gögnum skilað inn stafrænt)
Nánari upplýsingar veitir Birgir Hólm í síma 663 7140.