None
12. ágúst 2021

Kynningarfundur um raunfærnimat

Kynningarfundur um raunfærnimat

Kynningarfundur um raunfærnimat var haldinn miðvikudaginn 18. ágúst kl. 17.00 í beinni útsendingu.

Raunfærnimat er leið til að meta til náms þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því.

Eftirfarandi greinar eru á dagskrá í raunfærnimati hjá IÐUNNI haustið 2021 ef næg þátttaka fæst (fleiri greinum verður bætt við á önninni og fer það eftir eftirspurn)

  • Húsasmíði og málaraiðn
  • Rennismíði, stálsmíði, blikksmíði og vélvirkjun/vélstjórn
  • Málmsuða

Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati eru 23 ára aldur og 3 ára staðfest starfsreynsla í viðkomandi grein. Þessi leið hefur skilað góðum árangri þar sem margir þátttakendur raunfærnimatsins hafa haldið áfram námi og lokið sveinsprófi að loknu matinu.

Raunfærnimat er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er gengið út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað. 

Smelltu hér ef þú hefur áhuga á að vita meira

Fleiri fréttir