Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka næst
- Í matvælagreinum 1.-4. júní. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
- Í byggingagreinum í maí-sept. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
- Í prentgreinum í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
- Í bílamálun og bifreiðasmíði í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
- Í bifvélavirkjun í september. Umsóknarfrestur er til 14. júní.
- Í hönnunar- og handverksgreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
- Í snyrtifræði í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
- Í vélvirkjun í sept. Umsóknarfrestur er til 15. júní.
- Í hársnyrtiiðn í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
- Í ljósmyndun í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
- Í málmiðngreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 15.apríl.
Dagsetningar prófa verða birtar á vef IÐUNNAR um leið og þær liggja fyrir.
Með umsókn skal leggja fram: afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2021. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum,
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang: www.idan.is og á skrifstofunni að Vatnagörðum 20.