Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í mars - apríl 2020. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu.

    Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í mars - apríl 2020 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 9. mars og verða þeir opnir til 4. apríl. Námskeiðinu lýkur með staðbundnu rafrænu prófi laugardaginn 4. apríl 2020 (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar).

    Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 2. mars nk.

    Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR útfylltum ásamt:

    • afriti af prófskírteini umsækjanda
    • vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
    • vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki

    (ath. öllum gögnum skilað inn stafrænt)

    Upplýsingar og umsóknareyðublað fást einnig hjá IÐUNNI fræðslusetri að Vatnagörðum 20, Reykjavík.

    Nánari upplýsingar í síma 590 6434.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband