Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka fæst:
- Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn, 6. - 10. janúar 2020
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2019
- Í byggingagreinum í janúar 2020
Umsóknarfrestur eru til 15. nóvember 2019
- Í vélvirkjun í febrúar - mars 2020
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019
- Í snyrtifræði í febrúar - mars 2020
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019
- Í bifvélavirkjun í janúar - febrúar 2020
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019
- Í hársnyrtiiðn í febrúar - mars 2020
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019
Nánari dagsetningar prófanna verða birtar á vef okkar um leið og þær liggja fyrir.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2019.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má sækja á skrifstofu IÐUNNAR að Vatnagörðum 20 eða hér á vefnum.