Skráning á námskeið haustannar er hafin

Opnað hefur verið fyrir skráningar á námskeið haustannar 2019 hér á vef IÐUNNAR fræðsluseturs.

    Yfir 120 námskeið eru nú þegar í boði hjá IÐUNNI á haustönn 2019 og stöðugt fleiri að bætast við á vefinn. Það er því mikilvægt að fylgjast vel með námskeiðsframboðinu. Einfaldasta leiðin til þess er að skrá sig á póstlista IÐUNNAR á forsíðu vefsins (skrunaðu niður) og fá reglulega sent yfirlit yfir næstu námskeið og viðburði.

    Ef þú finnur ekki námskeiðið sem þig vantar á dagskrá IÐUNNAR er um að gera að kanna námskeiðsbanka okkar, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar öll námskeið sem við getum boðið upp á og senda okkur fyrirspurn. Þú getur líka sent okkur tölvupóst á idan@idan.is ef þú vilt fá tilkynningu um leið og námskeið sem þú vilt sækja verður í boði.

    Við hvetjum þátttakendur á námskeiðum og fyrirtæki til að nýta sér aðgang sinn að mínum síðum á vef IÐUNNAR. Á mínum síðum er einfalt að fá yfirlit yfir námskeið á næstunni og námsferil viðkomandi hjá IÐUNNI. Á mínum síðum geta fyrirtæki einnig fengið yfirlit yfir öll námskeið sem þau hafa greitt fyrir.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband