Fréttir
02. janúar 2019

Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði - skráning er hafin

Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði - skráning er hafin

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í febrúar 2019. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu.

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í febrúar 2019 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 15. febrúar og verða þeir opnir fram yfir próf. Námskeiðinu lýkur með staðbundnu rafrænu prófi laugardaginn 23. mars 2019 (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar).

Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs. Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 7. febrúar nk.

Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR útfylltum ásamt:

  • afriti af prófskírteini umsækjanda
  • vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
  • vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki

Skráningu á námskeiðið er lokið

(ath. öllum gögnum skilað inn stafrænt)

Upplýsingar og umsóknareyðublað fást einnig hjá IÐUNNI fræðslusetri að Vatnagörðum 20, Reykjavík.

Nánari upplýsingar í síma 590 6434.

Fleiri fréttir