Námssamningar - Vinnustaðanám
Iðnnámi er skipt í vinnustaðanám og nám í skóla. Tilgangur vinnustaðanáms er að efla þekkingu, færni og skilning nema á verkþáttum námsins. Að loknu vinnustaðanámi á neminn að hafa öðlast þá færni sem þarf til að standast sveinspróf. Lög og reglugerð vinnustaðanáms.
Vinnustaðanám er mikilvægur hluti af námi og nemendur sem stunda nám á námsbrautum sem leiða til lögverndaðra starfsréttinda stunda nám innan svonefnds meistarakerfis. Hægt er að nálgast frekari upplýsingur um gerð námssamnings með því að smella hér. Ýmis eyðublöð má nálgast hér vinstra megin á síðunni.
Gera þarf námssamning ekki seinna en mánuði eftir að vinna hefst hjá meistara í faginu. Nemendur verða að vera orðnir 16 ára til að mega fara á námssamning.
Smelltu á þá grein sem þú vilt fá frekari upplýsingar um:
- Bygginga- og mannvirkjagreinar - húsasmíði, húsgagnasmíði, múraraiðn, málaraiðn, pípulagnir, veggfóðrun og dúkalögn.
- Farartækja- og flutningsgreinar - bílamálun, bifreiðasmíði og bifvélavirkjun.
- Hönnunar- og handverksgreinar - gull- og silfursmíði, klæðskurður, kjólasaumur, skósmíði og söðlasmíði.
- Matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar - bakaraiðn, framreiðsla, kjötiðn og matreiðsla.
- Málm-, véltækni- og framleiðslugreinar - blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun, stálsmíði og netagerð.
- Snyrtigreinar - hársnyrtiiðn og snyrtifræði.
- Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar - bókband, grafísk miðlun (þ.m.t. prentsmíð), ljósmyndun og prentun.
Upplýsingar um sveinspróf finnur þú hér.




Aðalskrifstofur IÐUNNAR fræðslusetur eru að Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Bílgreinar IÐUNNAR fræðslusetur eru að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.
Námssamningar
IÐAN hefur hlotið