Fimmtudaginn 10. desember sl. stóð IÐAN og Grænni byggð fyrir þriðja og síðasta streymisfundi ársins í fundarröðinni um sjálfbærni í byggingariðnaði.
Gestir okkar að þessu sinni voru þau Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sjálfbærniverkfræðingur hjá Mannviti og Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar. Fundurinn var í beinni útsendingu en er nú aðgengilegur hér á vefnum og YouTube rás IÐUNNAR.
„Við erum eitt grænasta fyrirtæki landsins,” fullyrti Árni á fundinum, en Blómaval er hluti af samsteypunni og gegnir því væntanlega lykilhlutverki í þeirri fullyrðingu. Næstum allt timbur er umhverfisvottað og flutt beint frá bryggju inn í timbursöluna, aðeins 100 metrum frá. Árni fjallaði einnig um nokkur verkefni sem Húsasmiðjan hefur afhent vörur til og þar á meðal nýjan miðbæ Selfoss sem kemur til með að vera fyrsta Svansvottaða samfélagið á Íslandi.
Sandra Rán hvatti til notkunar á vottunarkerfum og sagði þau geta nýst sem afar góðir gátlistar þó svo að byggingaraðili sé ekki endilega að sækjast efitr vottuninni sem slíkri. Sandra kom einnig inn á nokkra punkta sem teknir voru saman af Ramboll, verkfræðistofu í Danmörku, en ef hugað væri að þessum atriðum væri hægt að draga úr loftlagsáhrifum byggingargeirans um allt að 60%.
Þess má geta að sjálbærnisstreymið er hvergi nærri hætt en IÐAN fræðslusetur í samstarfi við Grænni Byggð kemur til með að halda áfram með þessa fyrirlestra eftir áramót þar sem þátttaka hefur farið fram úr öllum væntingum. Dagsetningar verða kynntar von bráðar.