Nýr leiðtogi í matvæla- og veitingagreinum

Iðan fræðslusetur hefur ráðið til starfa nýjan leiðtoga í matvæla- og veitingagreinum

Leiðtogi er nýtt starfsheiti innan Iðunnar en hlutverk leiðtoga er að þróa faglega sérhæfingu og fræðsluframboð í viðkomandi greinum.

Nýr leiðtogi í matvæla- og veitingagreinum er Steinn Óskar Sigurðsson, matreiðslumeistari. Steinn Óskar hefur starfað á mörgum af betri veitingastöðum landsins ásamt því að vinna keppnina um kokkur ársins og vera meðlimur í kokkalandsliðinu sem keppt hefur fyrir Ísland bæði á heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum matreiðslumanna.

Við bjóðum Stein Óskar velkominn í hópinn.

Hægt er að hafa samband við Stein á steinn(hjá)idan.is

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband