Þrengt að blaðaljósmyndun

Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari ræðir um framtíð blaðaljósmyndunar og minnkandi aðgengi ljósmyndara að því að skrá söguna.

Vilhelm Gunnarsso, blaðaljósmyndari
Vilhelm Gunnarsso, blaðaljósmyndari

    Hann segir að það sé raunveruleg hætta á því að lítið sé myndað af daglegu lífi fólks nú þegar Fréttablaðið er horfið af vettvangi. Hann ræðir einnig sannar og ósannar myndir, gervigreind og það sem stóð upp úr á liðnu ári í ljósmyndun. 

    Vilhelm var sigursæll þegar myndir ársins voru valdar á árlegri sýningu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Sýningin er haldin af Blaðaljósmyndarafélagi Íslands og stendur yfiri til 27.maí og hægt er að nálgast bók með öllum myndum sýningarinnar í safnbúð Ljósmyndasafns Reykjavíkur.

    Vilhelm átti bæði umhverfismynd ársins og íþróttamynd ársins.

    Reynisfjara var í fréttum oft á liðnu ári vegna hættu fyrir ferðamenn. Erlendur ferðamaður lést í júní þegar alda hreif hann með sér úr fjörunni. Vilhelm fangaði þetta ótrúlega augnablik þar sem sést móta fyrir illúðlegu andliti í briminu. Hann kallar myndina sjálfur; Draugurinn í Reynisfjöru.

    Draugurinn  

    Reynisfjara var í fréttum oft á liðnu ári vegna hættu fyrir ferðamenn. 

    Vilhelm fangaði þetta ótrúlega augnablik þar sem sést móta fyrir illúðlegu andliti í briminu. Hann kallar myndina sjálfur; Draugurinn í Reynisfjöru.

     

     

    Vonbrigði Sveindísar Jane

    Hér fangar Vilhelm vonbrigði Sveindísar Jane eftir tapleik Íslands gegn Portúgal í umspilsleik fyrir laust sæti á HM í Ástralíu.

     

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband