Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í apríl 2023. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu.

    Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í apríl 2023 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra þriðjudaginn 18. apríl og verða þeir opnir til 6. maí. Námskeiðinu lýkur með prófi laugardaginn 6. maí, (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar).

    Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.

    Umsókn fer fram á mínum síðum vefs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt fylgigögnum eigi síðar en mánudaginn 10. apríl 2023.

    Fylgigögn eru:

    • afriti af prófskírteini umsækjanda
    • vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
    • vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki

    (ath. öllum gögnum skilað inn stafrænt)

    Nánari upplýsingar veitir Edda Jóhannesdóttir: 898-8772 / edda@idan.is

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband