Við leitum að leiðtoga matvæla- og veitingagreina

Leiðtogi leiðir fræðslu og þjónustu Iðunnar gagnvart matvæla- og veitingagreinum.

    Hlutverk leiðtoga er að þróa faglega sérhæfingu Iðunnar í viðkomandi greinum og skapar sterk tengsl við fagmenn/faggreinarnar. Viðkomandi þarf að búa yfir framsýni og frumkvæði gagnvart greinunum. Skilvirkt samstarf þarf við deildir Iðunnar um framkvæmd mála og við fagráð greinanna þar sem fræðslu- og þjónustuþarfir mótast.

    Um þig:

    • Þú hefur brennandi áhuga á fræðslu matvæla- og veitingagreina.

    • Tekur auðveldlega frumkvæði og átt gott með að leiða samstarf á farsælan hátt.

    • Hefur reynslu af samstarfi í atvinnulífinu.

    • Ert árangursdrifinn einstaklingur og með framúrskarandi samskiptafærni.

    • Þú hefur menntun sem nýtist í starfi, á sviði matvæla- og veitingagreina.

    • Býrð yfir þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.

    • Hefur stafræna styrkleika.

    • Ert framsækinn, skapandi og metnaðarfullur einstaklingur.

    Ábyrgðarsvið:

    • Skipulagning á fræðslustarfi fyrir matvæla- og veitingagreina.

    • Þróa leiðir til fyrirtækjafræðslu fyrir matvæla- og veitingagreinar.

    • Samstarf við lykilfólk í greinunum og uppbygging tengslanets.

    • Fyrirtækjaheimsóknir og eftirfylgni verkefna.

    • Þátttaka í umsögnum um fagtengd mál.

    • Undirbúningur og eftirfylgni Fagráðsfunda.

    Hæfniskröfur:

    • Menntun sem nýtist í starfi, æskilegt að viðkomandi hafi menntun í matvæla- og veitingagreinum auk framhaldsmenntunar.

    • Einstaklingur með þekkingu og reynslu af samstarfi í atvinnulífinu. Innsýn og reynsla af fræðslustarfi er kostur.

    • Umtalsverð þekking og áhugi á iðnaðinum, mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti, skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð, framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og árangursdrifni.

    • Menntun í kennslufræði og/eða reynsla af kennslu er kostur.

    • Félagslega sinnaður einstaklingur sem á auðvelt með að takast á við fjölbreytileg verkefni, vinna í hópi, túlka sameiginlegan ávinning ólíkra aðila og leiða samstarf á farsælan hátt.

    Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar næstkomandi.

    Sótt er um starfið hér

    Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

    Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Margrét Stefánsdóttir (margret@vinnvinn.is).

    Hlutverk Iðunnar er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrirtækja og starfsfólks í iðnaði. Það er gert með því að sjá fyrirtækjum og einstaklingum fyrir nýrri þekkingu og færni eftir því sem þörf krefur. Áhersla er lögð á að bregðast skjótt við þörfum iðnaðarins fyrir nýja þekkingu en á undanförnum misserum hafa orðið miklar breytingar í starfsumhverfi iðnaðarins. Þær breytingar hafa kallað eftir aukinni þverfaglegri þjónustu Iðunnar og breiðara þjónustuframboði. Nýrri stefnu Iðunnar er ætlað að svara þessu kalli. Hjá Iðunni starfar 26 manna samhent liðsheild. Við bjóðum upp á fyrirmyndar starfsaðstöðu, lærdómsríkt og uppbyggjandi starfsumhverfi þar sem áhersla er meðal annars lögð á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. www.idan.is

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband