Heimsmeistaramót í kjötskurði

Landslið kjötiðnaðarmanna er nýkomið heim frá lærdómsríkri keppni í Sacaramento

Jón Gísli Jónsson
Jón Gísli Jónsson

    „Markmiðið með landsliðinu er að gera kjötiðnaðarfólk sýnilegra“ segir Jón Gísli Jónsson landsliðamaður í kjötskurði nýkominn heim frá sinni fyrstu alþjóðlegu keppni með liðinu. Það er skipað okkar færustu kjötiðnaðarmönnum. Fyrirliði hópsins er Friðrik Þór Erlingsson en ásamt honum og Jóni eiga þar sæti Kristján Hallur Leifsson, útlitshönnuður, Jóhann Sigurbjarnarson, sem sér um fyllingar og skreytingar, Róbert Skarphéðinsson, sérfræðingur úrbeiningu og síðast en ekki síst Bjarki Freyr Sigurjónsson pylsugerðarmaður.

    Ísland var eina Norðurlandaþjóðin í þettað skiptið en alls tóku 13 þjóðir þátt í keppninni sem var öll hin glæsilegasta. Þýskaland stóð uppi sem sigurvegari en okkar menn eru staðráðnir í því að mæta aftur og komast þá á pall.

    Mikill tími hefur farið í undirbúning því upphaflega átti keppnin af fara fram árið 2020. Fyrr á því ári hafði liðið att kappi við landslið Íra sem voru á þeim tíma ríkjandi heimsmeistarar og var íslenska liðið glettilega nálægt þeim að stigum. „Eftir þá keppni vorum við bara með kassann úti og egóið í botni“ segir Jón Gísli. „Þarna vorum við kláralega reddý í keppni“ bætti hann við.

    Hráefnin sem þeir fengu í keppninni voru ½ naut, ½ svín, 1 lamb og 5 kjúklingar. Gísli nefnir sérstaklega að áferðin á kjötinu hafi verið sérkennileg og allt öðruvísi en íslenskt hráefni, þeir hafi þó verið með sín eigin áhöld sem er alger nauðsyn í keppni sem þessari.

    Þemað hjá landsliðinu var Eldgosið í Meradölum og var dæmt út frá samvinnu, vinnubrögðum, nýtingu, frumleika og hreinlæti.

    Jón Gísli heldur úti mjög fræðandi og skemmtilegum Instagram reikningi sem við hvetjum alla til að kynna sér. Áhugasamir geta smellt hér

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband