Umsóknir í Vinnustaðanámssjóð

Frestur til að sækja um vinnustaðanámsstyrkinn fyrir árið 2021 hefur verið framlengdur til 26. nóvember nk.

    Vinnustaðanámssjóð úthluar styrkjum til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar í því skyni að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi. Rétt til að sækja um styrk eiga fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi.

    Styrkur fyrir hvern nema er veittur að hámarki til 48 vikna fyrir árið allt, þó aldrei lengur en sem nemur þeim heildartíma sem krafist er í vinnustaðanámi fyrir viðkomandi nám. Frekari upplýsingar má finna á vef Rannís.

    Sótt er um í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband