Rafrænar ferilbækur formlega teknar í notkun

Í dag, 26. ágúst voru rafrænar ferilbækur formlega teknar í notkun og má þannig segja að dagurinn marki nýtt upphaf í iðnnámi á Íslandi. Fyrstu námssamningarnir voru undirritaðir í dag undir hatti nýrra ferilbóka.

    Árið 2013 hafði IÐAN fræðslusetur lokið vinnu við ferilbækur í 23 iðngreinum. Í því ferli lögðum við m.a. mikla áherslu við menntamálaráðuneytið að ferilbækurnar yrðu gagnvirkar til þess að nýtast sem best í vinnustaðnámi iðnnema. Það er því afar ánægjulegt að sjá verkefnið formlega orðið gagnvirkt sem mun verða til mikilla hagsbóta.

    Frá þeim tíma sem IÐAN tók að afhenda ferilbækur er áætlað að um 3000 eintök hafi verið í notkun á þessum tíma. Bækurnar hafa verið aðgengilegar á heimasíðu IÐUNNAR.

    Ferilbók er ætlað að efla gæði starfsþjálfunar með því að mynda samskiptavettvang nemanda, vinnustaða, skóla og annarra sem koma að starfsnámi. Ferilbókin tryggir að nemandinn fái rétta þjálfun og öðlist þá hæfni sem þarf að búa yfir við lok starfsnáms.

    IÐAN og Rafmennt munu innan skamms bjóða meisturum upp á námskeið í notkun rafrænna ferilbóka.

    Á myndinni má sjá Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, Máneyju Evu Einarsdóttur og Jón Frey Eyþórsson, nemendur úr Tækniskólanum ásamt Helga Ingólfi Rafnssyni, framkvæmdastjóra Rafholts, undirrita námssamninga á rafrænan hátt. 

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband