Alþjóðleg ráðstefna um tæringar í málmum

Fjöldi sérfræðinga deila reynslu sinni á alþjóðlegri ráðstefnu um tæringar í málmum, sem haldin verður 19. september í Reykjavík.

    Á ráðstefnunni bera sérfræðingar saman bækur sínar og fjalla um bestu leiðir til þess að verjast og vinna með tæringu í málmum. Tekin verða raunhæf dæmi úr hinum ýmsu atvinnugreinum og greint frá vandamálum og lausnum er varða tæringu. Ráðstefnan er einstakur vettvangur fyrir fagfólk sem vill auka þekkingu sína og kynnast öðrum sérfræðingum á þessu sviði. 

    Ráðstefnan verður haldin í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs að Vatnagörðum 20, þann 19. september nk.

    Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er haldin á ensku.

    Dagskrá og skráning hér

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband