Kynningarfundur um raunfærnimat

Kynningarfundur um raunfærnimat verður haldinn þriðjudaginn 27. ágúst kl. 17.00 í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs að Vatnagörðum 20 í Reykjavík.

    Raunfærnimat er leið til að meta til náms þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því.

    Þriðjudaginn 27. ágúst nk. stendur IÐAN fræðslusetur fyrir kynningarfundi um raunfærnimat. Fundurinn hefst kl. 17.00 og er haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs að Vatnagörðum 20 í Reykjavík. Allir eru velkomnir.

    Eftirfarandi greinar eru á dagskrá í raunfærnimati hjá IÐUNNI haustið 2019 ef næg þátttaka fæst:

    • Húsasmíði, málaraiðn og pípulagnir
    • Rennismíði, stálsmíði, blikksmíði og vélvirkjun/vélstjórn
    • Framreiðsla

    Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati eru 23 ára aldur og 3 ára staðfest starfsreynsla í viðkomandi grein. Þessi leið hefur skilað góðum árangri þar sem margir þátttakendur raunfærnimatsins hafa haldið áfram námi og lokið sveinsprófi að loknu matinu.

    Raunfærnimat er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er gengið út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað. 


    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband