Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í október 2018. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu.

    Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í október 2018 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 1. október og verða þeir opnir til 25. október. Námskeiðinu lýkur með staðbundnu rafrænu prófi laugardaginn 3. nóvember 2018.

    Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 17. september nk.

    Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR útfylltum ásamt:

    • afriti af prófskírteini umsækjanda
    • vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
    • vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki

    (ath. öllum gögnum skilað inn stafrænt)

    Upplýsingar og umsóknareyðublað fást einnig hjá IÐUNNI fræðslusetri að Vatnagörðum 20, Reykjavík.

    Nánari upplýsingar í síma 590 6434.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband