Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í desember, janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst.

    Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í desember, janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst.

    • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn
      11.- 15. desember. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.

    • Í byggingagreinum í desember – janúar.
      Umsóknarfrestur er til 1. nóvember

    • Í málmiðngreinum í febrúar - mars.
      Umsóknarfrestur til 15. janúar 2018

    • Í snyrtifræði í febrúar.
      Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2018

    • Í bifvélavirkjun í febrúar.
      Umsóknarfrestur er til 1. desember.

    • Í hársnyrtiiðn í mars. 
      Umsóknarfrestur til 15. janúar 2018.


    Nánari dagsetningar verða birtar hér á vef IÐUNNAR fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir. Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2017.

    Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband